Leigumiðlun

Leigumiðlun

 

Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur leigumiðlari

 

Eftirfarandi leiðir eru í boði fyrir leigusala íbúðarhúsnæðis - við mælum eindregið með Leið 1.
Ef þú vilt fulla þjónustu hafðu þá samband í síma 431-4144 eða sendu póst á fastvest@fastvest.is

Einnig getur þú skráð eignina og tekið fram í athugasemd til starfsmanna Leigumiðlunar Fasteignamiðlunar Vesturlands ehf að þú viljir fulla þjónustu og við munum hafa samband við þig.

Uppgefið verð er með VSK

 

Gjaldskrá m.v. 1. mai 2009

 

Leið 1 (Full þjónusta)

 

Skráning á fastvest.is
Löggiltur leigumiðlari kemur og skoðar eignina, verðleggur eignina, tekur myndir og undibýr sýningu eignarinnar.
Allar fyrirspurnir um leigu á húsnæðinu berast til Leigumiðlunar F.V. og leigusali er laus við áreiti og það að vera að sýna eignina margsinnis.
Að lokum er gerð áreiðanleikakönnun á þeim leigjendum sem til greina koma, samið við álitlegan leigjanda í samráði við leigusala og leigusamningur útbúinn.
Verð á þessari þjónustu, allri eða að hluta, nemur eins mánaðar leigufjárhæð viðkomandi eignar en að lágmarki kr. 55.000,-

Ef um skammtímaleigu er að ræða er gjald samkvæmt samkomulagi

 

Leið 2


Skráning á fastvest.is
Leigusali tekur á móti fyrirspurnum, sýnir eignina og velur leigjanda.
Löggiltur leigumiðlari sér um gerð leigusamnings og ráðgjöf varðandi tryggingar. Verð á þeirri  þjónustu er kr. 35.000.-
Ekki er innifalin áreiðanleikakönnun á leigjendum í Leið 2.
 

Leið 3


Skráning á fastvest.is
Leigusali getur auglýst eign með allt að 9 myndum í allt að 60 daga. Myndir segja meira en þúsund orð.
Sendu myndirnar á fastvest@fastvest.is ásamt heimilisfangi eignar og nafni eiganda/umboðsmanni hennar.
Eignir með myndum koma ofar í leitarvél sem auka til muna líkur á útleigu. ( myndir birtast ekki á forsíðu )
Viðkomandi sér sjálfur um alla þætti útleigunnar og afskráir eignina af síðunni að því loknu
Verð kr 3.500,- Vinsamlegast millifærið inn á reikning 186-26-11111 kt. 421293-2799  og sendið staðfestingu á greiðslu á fastvest@fastvest.is  Þegar staðfesting á millifærslu hefur borist verða myndirnar virktar.


Leið 4


Frí skráning á fastvest.is (ekki myndir)
Leigusali auglýsir frítt í allt að 30 daga, eftir þann tíma er eignin tekin af skrá.
Viðkomandi sér sjálfur um alla þætti útleigunnar og lætur afskrá eignina að því loknu.
Mikil áhætta getur fylgt því að ganga sjálfur frá leigusamningi.
Mörg dæmi eru til um það að leigusalar hafa orðið fyrir fjárhagslegum skaða vegna galla í leigusamningsgerð.

Leigusalar vinsamlegast munið að afskrá eignir þegar þær eru komnar í útleigu svo síðan sé sem virkust. Það er hagur allra.

 

ÖNNUR ÞJÓNUSTA:

  

Þjónusta

Skýring

Verð

 

 

 

Þóknun fyrir úttekt á húseign, uppsetningu og kynningu.

Kemur til ef ekki verður af samningi fyrir milligöngu Leigumiðlunar F.V.

15.000

 

 

 

Auglýsingar birtar í póstinum

Hver birting.

3.500

Önnur þjónusta

Öll önnur þjónusta sem Leigumiðlun F.V.veitir greiðist samkvæmt tímagjaldi kr/klst

 

 

8.000

Umsýslugjald

Leigutaki greiðir fast gjald fyrir milligöngu samnings

8.000