Lýsing
Fasteignamiðlun Vesturlands kynnir: Íbúðin á Brúarflöt 2 er á 2. hæð í tveggja hæða steinsteyptu fjölbýlishúsi. ATH skipti á rað/parhúsi eða einbýlishúsi á Akranesi.
Samtals 7 íbúðir byggt árið 2004. Rólegt og gott hverfi, staðsett nálægt leikskóla, grunnskóla og íþróttamiðstöð.
Íbúðin er samtals 109 fm með 3 rúmgóðum svefnherbergjum.
Í anddyri íbúðar er stór fataskápur.
Eldhús: Falleg eikarinnrétting með svart-yrjóttri granítborðplötu og gashelluborði. Electrolux eldhústæki. Uppþvottavél er innbyggð og fylgir. Anddyri, stofa og eldhús eru samtengd, eikarparket á gólfi, útgengt út á 9,45 fm flísalagðar svalir. 3 svefnherbergi: fataskápar í öllum, stór og góður í hjónaherbergi og öðru barnaherberginu, síma- og sjónvarpstengi í öllum svefnherbergjum. Baðherbergi: grábrúnar flísar á gólfi og beige flísar á veggjum. Eikarinnrétting: vaskborð með skúffum og skáp, baðkar með sturtu og handklæðaofn.
Þvottahús er innaf eldhúsi, gluggalaust. Eikarparket er á gólfum í herbergjum, gangi, stofu og eldhúsi. Grábrúnar flísar á gólfi í þvottahúsi og baðherbergi.
Sér 6,7 m2 geymsla á n.h. innifalin í flatarm. íbúðar. Einnig sameiginleg vagna- og hjólageymslu.
Annað: Íbúðin var máluð að innan 2009.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari uppl. veitir Soffía í síma 846-4144 eða email: fastvest@fastvest.is
.