Lýsing
Fasteignamiðlun Vesturlands kynnir: Beykiskógar 12. SKIPTI MÖGULEG Á ÓDÝRARI EIGN
Húsin eru afhent tilbúin undir tréverk. Verð frá 29,9mlj ALMENNT: Trésmiðjan Akur ehf byggir raðhús við Beykiskóga 10-12-14-16 á Akranesi. Hver íbúð er með þremur svefnherbergjum. Bílgeymsla er sambyggð og er innangengt í hana úr íbúð. Inn af bílgeymslu er geymsla og þvottaherbergi. Úr baðherbergi og stofu er útgangur á verönd/lóð. Baklóð hússins snýr í suðurátt. Húsinu verður skilað fullbúnu að utanverðu og óeinangruðu að innan samkvæmt byggingalýsingu. Eldvarnarveggir milli íbúða verða uppsettir og klæddir, skv. byggingarlýsingu. Þak hússins er byggt upp með kraftsperrum þannig að öll loft í íbúðum verða tekin niður. Húsið verður klætt að mestu með flísum og í því verða álklæddir trégluggar og útihurðir. Bílskúrshurðir eru einangraðar stálhurðir uppsettar á brautum. Allar fráveitulagnir verða lagðar, svo og neysluvatnslagnir rör í rör í gólfplötu ásamt, gólfhitalögnum. Lóð verður grófjöfnuð með mold og malarfyllingu í bílastæðum og undir verönd. Sjá skilalýsingu um nánari frágang
Aðalhönnuður er Bjarni Vésteinsson bygginarfræðingur hjá VGK- Hönnun hf (nú MANNVIT hf) á Akranesi
Húsið verður afhent samkvæmt samkomulagi við kaupendur.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari uppl. veitir Soffía í síma 846-4144 eða email: soffia@fastvest.is