FastVest kynnir:
FastVest kynnir eignina Lækjasmári 4, 201 Kópavogur.
Eignin Lækjasmári 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 223-1095, birt stærð 95.3 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Tómasson , í síma 6591896, tölvupóstur [email protected].
Eignin er laus til afhendingar.Falleg, björt og vel um gengin, þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi á þessum eftirsótta stað í Kópavoginum.
Komið er inn í forstofu með tvöföldum fataskáp. Vel með farið eikarparket er á öllum gólfum að eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi undanskildu.
Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu með góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Í eldhúsinu er rúmgóður borðkrókur.
Baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf er með snyrtilegri innréttingu með góðu skápaplássi, sturtuklefa og baðkari.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar eru í báðum herbergjum.
Stofan er rúmgóð og björt. Útgengt er úr stofu út á stórar svalir sem eru yfirbyggðar að hluta. Opið er á milli stofu og eldhúss. Í miðrými íbúðarinnar er gott rými sem nota má sem sjónvarpshol.
Sér þvottahús er í íbúðinni.
Sér geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni.
Nýjir ofnar eru í allri eigninni.
Þetta er falleg eign á góðum stað í Smáranum þar sem stutt er í þjónustu svo sem, skóla, leikskóla og verslun.
FastVest með þér alla leið