Háimelur 7, 301 Akranes
79.950.000 Kr.
Parhús
4 herb.
158 m2
79.950.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2022
Brunabótamat
0
Fasteignamat
58.600.000

FastVest kynnir:

Háimelur 7, Hvalfjarðarsveit.

158,5 fermetra parhús til sölu.  Húsið skiptist 135 fm íbúð  á einni hæð ásamt 23 fm bílskúr.


Staðsett í þéttbýliskjarna við Hagamel Hvalfjarðarsveit með mikið útsýni og mikla nálgun við náttúruna.
Hvalfjarðarsveit ferðast um hvalfjarðarsveit   og  Þar sem lífið er ljúft

Afhending: 1 september 2023
Um er að ræða staðsteypt parhús. Íbúðin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, alrými, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Bílgeymsla er sambyggð og er innangengt í hana úr íbúð.
Eldhús, stofa og borðstofa mynda eitt stórt alrými með dyr út í garð
L- laga eldhúsinnrétting og eldhústæki frá IKEA.Helluborð með innbyggðum gufugleypi, ofn og örbylgjuofn, uppþvottavél og ískápur með frysti.
3 rúmgóð svefnherbergi og skápar í þeim öllum.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með sturtu og baðkari
Gestastnyrting við forstofu.
Þvottaherbergi: Er með flísalögðu gólfi. Tengingar fyrir þvottavél og þurkkara ásamt skolvaski (þvottahús tengir hús og bílskúr saman).
Bílskúr: rafmagnshurð með lagnaleið út í bílaplan.  Gólf er flísalagt.
Gólfefni. Húsið er afhent án gólfefna á stofu eldhúsi og svefnherbergjum, þar eru  gólf  flotuð og rykbundin. Andyri, gestasnyrting, hol og þvottahús eru flísalögð
Frágangur lóðar:
Bílaplan jarðvegsskipt út að götu og lóð grófjöfnuð  

Fáðu senda skilalýsingu yfir eignina ! senda á [email protected] eða heyra í mér í síma 4314144

Skipulagsgjald 0,3 greiðist af kaupanda þegar það verður lagt á.

Háimelur er í Melahverfi, ört vaxandi byggðarkjarna í Hvalfjarðarsveit, Melahverfi er staðsett í ca. 10 mínútna akstursfjarlægð frá Akranesi og ca. 30 mín. akstursfjarlægð frá Mosfellsbæ.
Hvalfjarðarsveit veitir góðan afslátt af leikskólagjöldum. 
Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit er eitt stöndugasta sveitarfélag landsins. Boðið er m.a. uppá gjaldfrían leikskóla, sem er í hverfinu, í 5 klst. á dag, frá klukkan 9-14, fyrir börn frá eins árs aldri. Skólabíll ekur börnum í Heiðarskóla. Þá er 25% afsláttur af fæðiskostnaði í grunnskóla og leikskóla auk þess sem veittur er 70 þús. Kr. íþrótta- og tómstundastyrkur til barna, upp að 18 ára aldri.  

Hægt að fá senda skilalýsingu í tölvupóst eða koma við á skrifstofu FastVest á Kirkjubraut 40

FastVest með þér alla leið

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.